27. June, 2008
Uppáþrengjandi tík.
Já, mér líður eins og uppáþrengjandi tík sem þröngvar sér inná alla og neyðir þá til að hanga með sér.
Skil ekki alveg í þessu, en svona er þetta stundum. Þegar fólk segist ætla að hitta mann, en lætur svo ekkert í sér heyra, hvað á maður að halda? Ég veit reyndar að ég geri það oft en það er útaf því að ég sofna oft á kvöldin þegar ég kem heim úr vinnunni, og flestir sem þekkja mig vita af því, þannig...
En hvað sem því líður, þá kynntist ég ágætis stelpu um daginn (ótrúlegt en satt, þá tókst mér að komast inn fyrir 200m línuna áður en hún þreif upp krossinn og hrópaði guðsorð að mér. (fyrirgefið guðspjallið, en ég bara nenni ekki að skrifa guð með stórum staf)) virtist vera ágætis pía. En fólk er svosem þekkt fyrir að vera annað en sýnist...
Úlfr kvað klukkan 01:22:13
Tjáðu þig..
0 manneskjur hafa tjáð sig.
25. October, 2006
Hugarátök.
Nú get ég með sanni sagt að það séu hugarátök í gangi. Annar hver hlutur sem ég geri eða rekst á eða nota, minnir mig á ákveðinn aðila sem skipti mig miklu máli í lífinu en er nú farin.
Og allir hinir hlutirnir sem gera það ekki? Nú, þeir minna mig á aðra manneskju sem skipti mig miklu máli og er nú farin frá okkur...
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra, en ég veit ekki hvernig maður á að halda áfram með fortíðina sífellt á bakinu og vofur þeirra öskrandi yfir manni.
Úlfr kvað klukkan 01:02:26
Tjáðu þig..
0 manneskjur hafa tjáð sig.
6. October, 2006
Spurningar af fæðingu og tilvist okkar.
Ákvað að skella mér í bíó um daginn, kvikmyndahátíð í gangi, fór á myndina Exotica. Áhugaverð mynd, var frekar sýrð framundir miðja mynd. Þá skildi maður hvað við var átt.
Allavegana, svo ég komi mér að fjárans efninu.
Í þessari mynd spurði einn af persónum myndarinnar spurningar.
Spurningin var svohljóðandi:
Hver spurði okkur álits hvort við vildum fæðast inn í þennan heim? Og ef enginn spurði okkur álits, hvað er það sem heldur okkur hérna?
Svo spurning er þessi: Hvað er það sem heldur okkur hérna? Er það vinnan, eða fjölskyldan? Þætti gaman ef fólk ritar niður sín svör, ef það hefr einhver það er að segja...
Úlfr kvað klukkan 01:17:31
Tjáðu þig..
0 manneskjur hafa tjáð sig.
30. September, 2006
Girls just wanna have lunch...
Já, stelpur, yndislegar verur en samt algjörlega óþolandi. Ég á nefninlega við vandamál að stríða, mér finnst alltaf eitthvað vanta í líf mitt, og stelpur virðast vera lausnin, ein í einu þó.
Annað vandamál sem fléttist inní þetta vandamál mitt, er það að í raun, verð ég aldrei hrifin af stelpum í raun, f. utan fyrstu stúlkuna sem ég varð óeðlilega náinn. Hana elskaði ég. En síðan þá, hef ég ekki orðið hrifinn af stelpu, ég kann bara vel við eina og eina, og þær valda mér óþægilegu hugarangri í ágætis tíma, allan tímann. En ég býst við að það sé ákveðinn hluti af því að vera hrifinn af einhverri, eða hvað? Núna hinsvegar hef ég lent í þeirri skemmtilegu hremmingu, að ákveðin stúlka heillar mig, en hún vill ekkert með mig hafa. Hvernig í fjáranum sem það á að ganga upp. Ég er að spá í að gefast bara upp á þessari villu vegar og hella mér ofan í vinnu, nei bíðið við, of seint...Held ég fari að sofa, vakna f dagmál og slá út spilavíti...
Úlfr kvað klukkan 05:03:58
Tjáðu þig..
0 manneskjur hafa tjáð sig.
5. September, 2006
Líkt og vofa.
Líkt og vofa í mínum örmum,
þú lagðist við hlið mér.
Sú eina sem fannst mitt hjarta,
sú eina sem gast það snert.
Sálu mína þú tærðir,
tilfinningar á brott.
Kuldinn sem á eftir þér fylgir,
í minni mér er.
Sársaukinn er þú kysstir,
kaldlynd þín ást.
Inn þú varlega gekkst,
reistir mig úr rekkju,
með hníf í hendi stolt varst,
innsiglaðir ást okkar!
Líkt og þræll við mína kistu,
þú laust höfði fyrir mér.
Ást þína ég skyldi,
endurgjalda í blóði.
Ég lifi á sálum,
blóð er mitt að þiggja,
líf ég hirði,
þræla ég gef.
Inn þú varlega gekkst,
reistir mig úr rekkju,
með hníf í hendi stolt varst,
innsiglaðir ást okkar!
Sál þína ég á,
geymi djúpt í hjarta mínu.
Þú yfirgefur mig aldrei,
því hlekkjuð ertu hér.
En frelsið sem ég gaf þér,
ódauðleikinn sem ég þér veitti.
Fórnir fyrir þig!
Inn þú varlega gekkst,
reistir mig úr rekkju,
með hníf í hendi stolt varst,
innsiglaðir ást okkar!
Smá, ljóð? Sem er í vinnslu. Endilega komið með ábendingar ef ykkur finnst eitthvað mega vera skárra.
Hugsanlegt að ég skelli inn útskýringu f. ykkur sem ekki kunnið að lesa milli línanna.
En þar til, lifið nokkuð heil.
Úlfr kvað klukkan 02:36:18
Tjáðu þig..
0 manneskjur hafa tjáð sig.