26. September, 2008
Enn af meiri niðurtíma..
Loki hefur verið að detta niður öðru hvoru undanfarið, sökum rafmagnstruflanna. Minnir mig bara á að drífa í að koma ofur-UPS-unum upp!
Einnig datt út póstþjónninn fyrr í dag og var óvirkur fram á kvöld. En það var útaf smá breytingu á póstþjónustunni.
Notendur ættu nú að geta notið nýju póstþjónustunnar á
mail.ulfr.net
En annars er það af mér að frétta að ég reif undan afturhásinguna á jeppanum og er að möndla FjórHlekki (4link) og ýmislegt góðgæti undir.
Myndir í mynda albúmi undir Ulfsfar/Undanfari_II/Hasingafaerzla
Úlfr whispered at 02:14:47
Speak friend..
There are 0 sayings concerning the life, universe and everything...
27. July, 2008
Niðurtími...
Eins og glöggir notendur ulfr.net hafa tekið eftir, hefur netþjónninn legið niðri. Ástæðan kann að vera eftirfarandi:
Þegar ég bætti við auka hörðum disk fyrir /home (stækkaði home uppí rúm 470GiB) þá setti ég í fstab /dev/ad1 sem /home í stað /dev/ad1s1e sem orsakaði það að serverinn vildi ekki ræsa sig eftir síðasta rafmagnsleysi...
Komst ekki í þetta fyrren í kvöld og þurfti að vesenasts við að breyta þessu til að laga vandamálið.
Var svosem auðleyst þegar maður var búinn að einangra og fatta hvert vandamálið var.
Úlfr whispered at 01:17:55
Speak friend..
There are 0 sayings concerning the life, universe and everything...
27. June, 2008
Olíukreppan.
Myndband af ræðu Lindsey Williams
Þetta myndband er rúmur klukkutími, en vel þess virði að horfa á ef maður hefur annað borð áhuga á þessari olíukreppu.
Williams hér talar um stærstu jarðolíu birgðir heims, í Alaska, sem eru faldar fyrir umheiminum, til að halda verðinu háu.
Hann talar einnig um að verðið eigi eftir að verða 4-5 dollarar á gallonið, það varð síðan raunin. Mig minnir að þetta video sé um ársgamalt, gallonið í BNA kostar um 4 dollara.
Ég held að málið sé að setja upp álhattana núna, þetta eru engar smá samsæriskenningar í þessu myndbandi, en fátt þarna sem ég hef ekki sagt áður. :)
Skrifa meira seinna... ef ég verð ekki "horfinn" af yfirborði jarðar.
Úlfr whispered at 01:45:53
Speak friend..
There are 0 sayings concerning the life, universe and everything...
17. May, 2008
Í guðanna bænum...
Sumt fólk á bara að skila inn tilvistarrétti sínum, hefur ekkert með hann að gera og hann væri betur nýttur annarstaðar.
En að öðrum málum, smá blogg í anda nýjaldar sinnanna.
Er búinn að vera á fullu, eins og vanalega (sumir hlutir breytast aldrei, efa að ég deyji nokkurntíman, hef ekki tíma í slíka vitleysu) búinn að vera að vinna í druslunni undanfarið og svona eitt og annað, aukatankur kominn undir, loftdæla í skottið og lögn fram í grill. Fínt að geta bara tengt slönguna og ýtt á takka. Slappað af og fengið sér kakó á meðan dælt er í dekkin. Von er á A/C dælu bráðlega, úr T-Celicu, spurning hvort mér takist að smyrja það í.
En annars er ég líka búinn að vera á fullu á fundum og fleiri vitleysu, er víst orðinn meðlimur í Hjálparsveit ferðaklúbbsins 4x4. Fór meira að segja í eina ferð fyrir kjör til að redda einum hjöruliðskross sem var brotinn upp við setur. Ferðin gekk ágætlega og má sjá myndir úr ferðinni inni á vefmyndaalbúminu mínu undir "Setur". Mæli með að fólk líti á þær.
Reyndar varð þessi ferð tvöföld björgunarferð því að á leiðinni til baka var einn máttvana Rönner (já, togýta druslurnar bila líka) með bilaðar lokur að framan (helv vaccum drasl), brotinn millikassa og eða afturdrif, sem og ónýta demparafestingu og brunninn alternator. Hinkrað var við hjá þeim og tekinn púlsinn, endaði með að ég dró hann inná Selfoss.
Svo fór ég ferð inní Jökulheima með Vesturlandsdeildinni um þar seinustu helgi, þurfti þó að brasa áður en ég fór í ferðina og bruna uppá skaga og skipta um dekk, enda hefði ég lítið gert á 38" blöðrunum.
Ferðin inneftir í jökulheima gekk vel að undanskildari festu þar sem Undanfari II datt oní krapapytt og sökk upp að sílsum. Já, á 44" og þið hefðuð átt að sjá svipinn á mér þegar ég tók eftir að fjöðrunin að aftan var komin í botn öðru megin og dekkið horfið. Því miður engar myndir af því en nokkrar myndir af druslunni fastri sem og eftir að hún losnaði. Versta við þetta var að hópurinn minn hafði lagt af stað um 1800h að staðartíma frá Reykjavík og voru komin inní Jökulheima um 2 leitið. Ég hinsvegar lagði af stað úr bænum um 2400h og var kominn inn eftir um 800h. Að vísu innifalinn smá lúr á leiðinni í bílnum, ágætlega "kósý" eins og Vala Matt hefði orðað það og 2,5h festa. Talandi um það (eða réttara sagt skrifandi um það) þá var ég einn í rólegheitunum að moka í 2,5h.
Fyrsta klukkutímann færðist bíllinn innan við 10mm fram og til baka, en svo eftir smá meiri mokstur fór hann að hreyfast smá, þá tók við enn meiri mokstur og enn meira hjakk. Enda er kúplingin mín fremur óhress með mig núna get ég ímyndað mér. En hún er ný síðan síðla veturs svo ég held hún haldi alveg. ;)
Daginn eftir var haldið heim á leið sökum slæms skyggnis á jöklinum, og enginn nennti upp á hann, tókum smá útúrdúr á leiðinni inn að Þórisvatni, lentum í nokkrum krapafestum á leiðinni og kostaði ein þeirra mig það að afturdekkið fékk leið á felgunni og hrökk inn fyrir. Þökk sé aðstoð góðra manna vorum við snöggir að koma því aftur á og haldið var áfram, dekkið yfirgaf mig þó tvisvar í viðbót (að framan í þetta skiptið) og endaði með að ég baslaðist í gegnum krapann og snjóinn með yfir 10psi í dekkjunum. Gekk samt furðuvel þó.
Er orðinn helvíti flinkur í að koma þessum dekkjum á þó, vona að þess þurfi ekki meir hjá mér, því nú eru nýju felgurnar komnar í hús, 18" breiðar stálfelgur með soðnum kannti. Sé eiginlega eftir að hafa ekki farið útí kantlás (bead lock) að innan sem utan.
Ferðin heim uppá Akranes var heldur skrautleg, það var svo mikill krapi og snjór inní dekkjunum vinstra megin að bíllinn kastaðist allur til en tókst mér þó með þolinmæði og seiglu að bröltast uppá skaga þar sem skipt var um dekk.
Klárlega stóð Dick Cepekinn sig afar vel í ferðinni, eina sem sveik voru þessar helvítis álfelgu tuðrur. Flaut vel ofan á krapanum svona þegar ég mátti vera að því að vera á litlu lofti.
En nóg í bili, ætla að reyna að sofna, aftur...
Úlfr whispered at 04:54:30
Speak friend..
There are 0 sayings concerning the life, universe and everything...
1. March, 2008
44" Undanfari
Já, fréttirnar eru sannar.
Tróð 44" Dick Cepek undir rönnerinn í gær. Kemur helvíti vel út og eina sem ég þurfti að gera var að færa stopp boltana fyrir færsluna á stýrisganginum örlítið meira út. Örlítið minni beygjuradíus en dekkin rekast ekkert í.
Svo þurfti ég náttúrulega að taka brettakantan að aftan af og snyrta örlítið þar í kring. Annars er þetta bare flott.
Ætla að snyrta stuðarann til á eftir og henda honum á, og sennilega smíða bráðabirgðarbrettakanta að aftan úr vörubíla köntum. :D
Mæli með að fólk líti á myndina af kagganum í breytingu
hér
Nú er næsta mál á dagskrá, stýristjakkur og föndur í kringum það.
Úlfr whispered at 17:03:49
Speak friend..
There are 0 sayings concerning the life, universe and everything...