5. June, 2007
Ný vara, Aukarafkerfi fyrir Jeppa.
Mér hefur alltaf þótt verð á aukarafkerfum uppúr öllu valdi, og þar að auki ekki hægt að fá sniðin kerfi fyrir hvern bíl. Hingað til hefur maður alltaf þurft að reyna að ,,mixa'' eitthvað sjálfur í bílinn sinn, með misjöfnum árangri. Hver kannast ekki við hrúgu af öryggjaboxum og segulrofar útum allan vélasal?
Ég ákvað að setjast niður og hanna mitt eigið aukarafkerfi, sem mátti þó ekki kosta meira en 30 þúsund krónur með vinnu og efni. Niðurstaðan varð UR-110, aukarafkerfi með 10 plássum fyrir spaðaöryggi, og 12 tengingum inn/út og 5 segulrofum. Boxið reyndist vera heldur plássmeira en ég vonaði, en sökum þess hve segulrofarnir og öryggjaboxin taka mikið pláss er ekki hægt að komast upp með minna en 200x300x120mm box.
Þetta rafkerfi er með stofnvar 80A (sett sem næst rafgeymi á stofnkapal) og með úttak fyrir 5 kastara, loftdælu eða hvað sem tekur 30-40A eða minna og þarfnast af/á rofa. Einnig eru 5 aukaúttök fyrir allskonar aukabúnað sem fólk á það til að troða í jeppana sína.
Hægt er að fá þetta aukarafkerfi samsett og með tilbúnum vírum og öryggjum, en einnig er hægt að fá sérsmíðað aukarafkerfi fyrir þá bíla sem eru með minna pláss í bílnum fyrir aukarafkerfi. Það er að segja, tvískipt box, UR-210, þar sem annað boxið er fyrir öryggi og tengingar inn á og útaf segulrofunum, en hitt er fyrir segulrofa.
Einnig er boðið upp á ísetningu og það að skoða jeppa til að aðstoða við val á aukarafkefi eða hvernig best sé að hátta smíði þess. Í framtíðinni verður vonandi hægt að bjóða uppá pakka, með öllum fylgihlutum og leiðbeiningum til að setja saman sitt eigið kerfi.
Enn er þó ekki komið alveg fast verð á UR-210 en UR-110 mun væntanlega kosta um 22-25 þúsund krónur tilbúið til ísetningar, með köplum og leiðbeiningum. Hægt verður að fá ísetningu með en það reiknast þá sem tímavinna, eftir umfangi verks.
Hægt verður að sjá myndir af aukarafkerfinu sjálfu innan skamms.
Þetta kerfi er þó í þróun, og munu allir gallar sem kunna að koma upp allt að 3 árum eftir kaup, verða lagaðir án nokkurs aukakostnaðar kaupenda.
Þó fyrrum við okkur af öllum skemmdum eða bilunum sem rekja má til beinnar misnotkunar kaupanda eða rangrar uppsetningar.
Einnig má á það minna að Úlfraf sér einnig um ísetningu vinnuljósa, kastara, og annars aukarafbúnaðar sem jeppamenn eru gjarnir á að setja í jeppa sína.
Kveðja, Úlfur Þór, rafeindavirkjanemi og jeppaáhugamaður.
Úlfr kvað klukkan 01:55:52
Tjáðu þig..
0 manneskjur hafa tjáð sig.
23. May, 2005
Voigt hátalarar.
Ég hef smíðað þónokkuð af voigt pípum. Settið kostar um 40.000-45.000ISK. Hægt er að fá þær í öllum litum. Svartur og hvítur hefur þó verið vinsælastur. Eins og má sjá á
eftirfarandi myndum.
Stærðirnar á keilunum eru 4" (106mm), 5" (127mm) og 6,5" (165mm). Hátalararnir eru úr kevlar, og virðast hljóma mjög vel.
Einnig er hægt að fá ódýrari hátalara, sem eru mun umfangsminni og með 4" (106mm) hátalara.
Ekki er komið neitt verð á þá enn sem komið er. Hægt er að hafa samband gegnum póstfangið mitt.
ulfr.thor @ ulfr.net
Úlfr kvað klukkan 19:08:09
Tjáðu þig..
0 manneskjur hafa tjáð sig.